JólagjöfinÍris

Ætla ekki að skrifa neitt um ástandið í þjóðfélaginu... tala frekar um það.

En er búin að finna jólagjöfina í ár!! Kleinuhringjajárn, sem er alveg á kostakjörum, aðeins kr. 2995!! - og það bakar hvorki meira né minna SEX kleinuhringi í einu!! Held þetta sé klárlega það sem vantar inn á öll heimili! Er að hugsa um að hafa með þessu í pakkanum ábreiðu Skjaldar Eyfjörð á Bubba laginu Fjöllin hafa vakað. Hmmm... Held þetta geti varla klikkað...

Lifið fyrir daginn í dag kæra fólk og hugsið í lausnum, eins og ég las í Fréttablaði dagsins!
Ég er farin að taka mig til fyrir fimleikaæfingu...
Verið þið sæl.

...og koma svo!Íris

Ég er mjög stolt af íslenska handknattleiksliðinu...þeir eiga fyllilega skilið að fá orður og hyllingu...að mínu mati er þetta svo bara komið gott af hátíðarhöldum. Við vorum úti ég og krúsurnar mínar þegar tvær flugvélar og tvær þyrlur flugu hér yfir. Þær voru mjög glaðar með þetta – við horfðum líka á þetta í sjónvarpinu. Og ég segi það ekki að þeir eru hetjur, en það verður líka að passa að fara ekki yfir hræsnismörkin...það er margt í þjóðfélaginu sem er þannig að amk hjá mér hringja einhverjar viðvörunarbjöllur...

Ég er reyndar stoltari þessa dagana af krúsunum mínum tveimur sem voru að byrja á leikskóla annars vegar og í skóla hins vegar. Það að vera orðin skólastelpu-mamma er skrítin tilfinning!!! Er stolt, kvíðin og finn pínulítið fyrir aldrinum...en ætla nú alveg að ýta því skjótt til hliðar!:)

Vinnan gengur sko alveg stórvel held ég bara – lít bjartsýn til vetrar... gleðin ein!

Sumarið var meiriháttar – endalaus ferðalög, Vestfirðirnir skannaðir eins vel og mögulegt er og jafnvel betur einungis á fimm dögum. Þingvellir, Akureyri og Hamarsheiði voru einnig heimsótt – keyrsla, skoðunarferðir í bland við kósýheit, rólegheit og afslappelsi... og át, úff... endalaust át! Bara eins og sumarfrí á að vera... Ekki hægt að segja annað en við höfum haft það gott.

Er að fara á tónleika annað kvöld – Sebastien Tellier! Hlakka mjög mikið til! Fórum hjónin á Buena Vista Social Club um daginn... það var magnað! Alveg hreint frábært! Það er alltaf svo gaman á tónleikum!

 

Svo erum við búin að kaupa okkur flugmiða til Danmerkur um jólin!! Jeijjj... það verður gaman! Ætlum að halda jólin að þessu sinni í faðmi vina. Eitthvað sem maður hefur aldrei upplifað áður... Verðum með Kalla og Stínu, Halla og Betu! Spennandi að eiga svona allt öðruvísi jól en við höfum áður átt!

 

Læt þetta yfirlit duga í bili... læt heyra í mér fljótlega aftur, var búin að ákveða að blogga ekki næst fyrr en það kæmi athugasemd – Snædís kom mér af stað... Thanx;)

 

Elskið hvert annað – og hugsið hlýlega til náungans! Við erum stolt af því að vera Íslendingar – ekki bara vegna Ólympíuleikanna...

Kennslukonufrú...Íris

Er ekki byrjuð að vinna í neinu markmiðanna sem ég ræddi um hér að neðan... þetta kemur – nóg eftir að sumrinu!!

 

Talandi um sumarið þá er náttúrulega stærsta markmiðið að njóta sumarsins og það gengur bara alveg hreint ljómandi vel! Við vorum til dæmis að koma úr ofur –notalegri ferð úr Hvalfirðinum áðan. Dvöldum þar eina nótt í þvílíkum kósýheitum með Guðbjörgu, Lofti, Ófeigi, Mariam og börnum stórum og smáum!:) Er reyndar ennþá södd en voðalega sem það er gaman að fara út úr bænum!

 

Jább, ég er orðinn kennari – var það ekki þegar ég skrifaði síðasta blogg held ég. Útskriftin fór vel fram og það gerðu líka veislur sem ég hélt hér síðar um daginn og um kvöldið. Endalaus gleði!!!

 

Er annars að verða komin með nokkurn veginn nóg af fótboltahljóðum... suð í eyrum öðru nafni... jájá, ég er bara leiðinda eiginkonan...hehe.. er samt ekkert að tuða sko, bara þreytt í eyrunum...svo að þá fer ég bara út:)

...eins og til dæmis núna... áfram Holland samt!

 

Leiter...

Merkt?Íris

Er búin að vera að velta fyrir mér hvort það vanti hjá mér þjóðernisstolt... held nú ekki amk ekki þegar kemur að tungumálinu okkar og menningu! Áttaði mig samt sem áður á því að ég á ekki eina flík sem er merkt Íslandi. Fór að hugsa þetta í dag þegar samstarfskona mín, sem er reyndar af erlendu bergi brotin, var í sokkum merktum “Iceland”. Ég veit ekki hvort svona merkingar ná kannski eingöngu til þeirra sem eru aðfluttir eða eru ferðalangar í ókunnu landi...ég  veit samt til að margir eiga flíkur merktar sínu landi - þetta virðist til dæmis vera voða vinsælt sums staðar í USA... og þegar út í það er farið á ég ekki heldur neinar flíkur sem eru merktar öðrum löndum...eins og til dæmis Portúgal, Danmörku eða  Noregi - og hef ég nú búið þar!

Ætla að hugsa mig aðeins um áður en ég svara ykkur þó hvort ég hef hugsað mér að breyta þessari stöðu í fataskápnum...

 

Ég hef sett mér nokkur markmið í sumar... þó nokkur reyndar en það eru nokkur sem ég stefni algjörlega á að ná! Þau markmið eru að fara út í Viðey –en það hef ég aldrei gert!! Fara upp á Esju...(eða amk upp á Helgafell...), fara í nýjar búðir sem ég hef ekki gefið mér tíma ennþá til að fara í (eins og til dæmis Naked ape – sem ég hef ætlað að fara inn í síðan hún opnaði!!:/)

Og síðustu tvö markmið mín í þessu flokki eru: að læra að fara í handahlaup!!! –nei, ég hef nefnilega aldrei getað það og finnst það miður. Hins vegar er ég að hugsa um að sigrast á hræðslu minni við vatnsrennibrautir (eða amk íslenskar vatnsrennibrautir)... ég ætla að hafa eldri dóttur mína með í þessu markmiði, hræðslan er svolítið mikil hjá henni líka við þessar brautir og núna er stefnan tekin á að við förum saman í rennibrautir í næstu sundferðum!!!

 

Nú er bara að sjá hvernig þetta fer allt saman – hvenær æfingar og ferðalög byrja!!

 

Er samt bara núna að undirbúa útskriftargleði... geymi þennan flokk markmiða því fram yfir helgi...

Yfir og út elsku vinir!!!!!!

Í ullarsokkum í sólbaði...Íris

Brúðkaupið var stórkostlegt! Það er ekki hægt að lýsa því með neinu veikara lýsingarorði – og eiginlega er þetta ekki nógu sterkt til orða tekið!

Við erum ennþá í skýjunum og eigum liklega alltaf eftir að fara þangað í hvert sinn sem við hugsum til þessa dags í framtíðinni!

Það gekk allt upp og fór betur en við höfðum nokkru sinni ímyndað okkur..athöfnin var endalaust falleg, tónlistin í henni, kjóllinn minn var ólýsanlegur, myndatakan var svo skemmtileg, veislan, skemmtiatriðin, veislustjórarnir okkur voru eins og kynnar á Eurovision svo fullkomin voru þau, maturinn meiriháttar og þið kæru vinir gerðuð daginn þann fullkomnasta sem hægt var að hugsa sér!!!

Ég kann því miður ekki að setja mynd inn í blogg-færslu (nördið ég) en við vorum voðalega fín;)

 

Hveitibrauðsdagarnir voru voðalega notalegir... og ég vil reyndar meina að þeim sé ekki lokið. Er að hugsa um að hafa þá amk fram á haustið! Við eyddum fyrstu fjórum dögunum sem hjón í sumarbústað og það var einstaklega góð hugmynd þar sem það veitti ekki af því að endurheimta orku og þrekJ

 

Sit núna úti á svölum heima hjá mér í sólbaði í brakandi fínu veðri... það kemur þó gola annað slagið fyrir hornið svo að ég hef ekki farið úr ullarsokkunum ennþá, en er þó á hlýrabol...ekta íslenskt sólbað held ég!

 

Litlan mín er lasin og búin að vera núna í þrjá daga. Hún er sofandi núna. Það er rosalega óþægilegt að sjá töluna 40,5 á hitamæli eftir a hafa mælt barnið sitt...en vonandi fer þetta allt að koma!

 

Ég og Snædís áttum stefnumót í gær í ´Kringlubíó – sáum þar Sex and the city og ég átti ekki von á neinu nema löngum þætti. Það kom mér því heldur en ekki í opna skjöldu þegar ég var búin gráta tvisvar og myndin ekki búin!!! Þetta var meiriháttar mynd og staðfesti trú mína að ég VERÐ að eignast alla þættina og að sjálfsögðu myndina!! –Ef þið sjáið auglýst að hún sé komin út á dvd – then please, let me know!!!

 

Annars erum við komin á fullt að skipuleggja sumarið – jájájá, excel og tékklistarnir hrúgsast upp í kringum okkur;)

Endilega hafið samband ef þið viljið af okkur vita einhvers staðar á einhverjum sérstökum tíma í sumar...

Vestfirðirnir urðu fyrir valinu sem innanlandsferðalag ársins! Enda höfum við ekki farið þangað ennþá! Hlökkum mikið til!

Síðan þetta hefðbundna – plana útilegur og norðurferðir, eitt ættarmót og tilheyrandi grill, gleði og leikir;)

 

Ég er svo að útskrifast 14.júní! Jább, það er bara þannig! Fullgildur kennari, sem er þó ekki að fara að kenna í haust, ekki amk í grunnskóla! Var að fá stöðu sem aðstoðarleikskólastjóri og mun byrja í sumar sem slík! Er endalaust ánægð með það og hlakka mikið til!!!

 

Lesendur góðir – ég afsaka bloggleti mína upp á síðkastið – endilega hvetjið mig áfram með athugasemdum;) (þ.e.a.s. ef þið viljið að ég skrifi meira..hehe)

Eigið góðan dag, verið góð hvert við annað og veitið því athygli hvað það er margt sem þið getið verið þakklát fyrir !!!

...er líða fer að...Íris

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir brúðkaupsdaginn okkar sem er eftir 6 daga! Það er dálítið stutt... síðasti sunnudagurinn sem ógift...hehe;)

Allt að verða klárt held ég bara.. kjóllinn kemur reyndar ekki fyrr en á þriðjudaginn (sem er btw afmælisdagurinn minn;) – ég er sallaróleg þó... held að Fjóla dressmaker taki út allt stressið í sambandi við kjólinn! Tíhíh...

Hringarnir –tékk, föt á stelpurnar og Dóra – tékk... uuu, já, það er bara ljúft hvað eru komin mörg tékk-merki í skipulagsmöppuna.. svo ég tali nú ekki um excel skjalið;)

 

Manninum mínum var rænt í gærmorgun og hann steggjaður... var óendanlega ánægður með daginn..já og nóttina ef því er að skipta.. svolítið meira úthald greinilega en ég (eða meira óskynsemi...tíhíh).

 

Ég fór í prufuförðun í gærmorgun og jiii hvað ég verð fín:) – búin sem sagt í samráði við þessar yndislegu vinkonur hvernig hár og andlit á að vera! Mjög ánægjulegt að eiga vini sem eru í mismunandi störfum...  það er svo persónulegt að hafa einhverja sem maður þekkir í þessum hlutverkum verð ég að segja... endalaust notalegt!

 

Brúðartertan var bökuð í gær með aðstoð Erlu Jónu! (gott að hafa einhvern meðsekan ef hún verður steik...;)

Voða notalegt að vera svona heima heilan dag... Gestagangur allan daginn... minnti mig á fæðingarorlofið sem varði í ca. korter... tíminn liður alltof fljótt

 

 

Erum að fara í sundferð mæðgur í rigningunni og njótum þess svo að eiga frídag á morgun!

 

 

YNDISLEGU VINKONUR!!!Íris

Jæja það kom að því!!!

Sama hversu mikil afneitunin var hjá mér var ég eiginilega orðin viss um að þetta myndi skella á á laugardaginn... sem varð raunin! – og þvílík skemmtun og þvílík gleði!!!
Þetta heppnaðist endalaust vel og ég sá nú alveg að það sem hefur verið talað um mig og skipulagningu...það þýðir sko ekki lengur girls!! Þið eruð verri en ég ef eitthvað er!! Hahah...

Mótorhjólatöffari sótti mig um hálf ellefu á laugardagsmorguninn – það var maður Guðbjargar vinkonu minnar sem kom líka ásamt Erlu og Lilju.

Frúin var nú bara á náttfötunum ennþá – ætlaði að fara að græja mig í ræktina... mátti ég gjöra svo vel að fara að pakka eftir reglum sem afhentust í bréfi frá stelpunum!

Ég fór í mótorhjólagallann eftir að búið var að pakka og við brunuðum af stað þvílíkt frábæran sight-seeing tour um Hafnarfjörð og nágrenni!

Lautarferð í Hellisgerði, leikir og létt gaman var næst á dagskrá þar sem ég fékk býflugubúning sem ég var svo í fram eftir degi:)

Það voru lagðar ýmsar þrautir fyrir mig...þar má nefna að knúsa mann og annan, fá símanúmer “hot” gaura;) og taka viðtal við þekktan fjölmiðlamann með fyrirfram útbúnum spurningalista!

Þetta gekk eins og í sögu – knúsaði Sigga storm og fékk símanúmer hjá Davíð Þór meðal annars:)

- minn 15 mínútna frægðarljómi fékk að skína í stúdiói hjá Magga Kjartans og að því loknu fórum við í Bláa Lónið þar sem ég fékk þvílíkt, endalaust slakandi nudd ofan í lóninu!!! Mæli með því við hvern sem heyra vill!!!

Endalaus matur, drykkur og þvílíkar dýrindis gjafir!!!

Partý, matur og singstar hjá Snædísi um kvöldið... sem endaði með pínu of mikið af Opal-skotum, gosbjór og fleiru sem ég hreinlega get ekki fest tölu á...tíhíh...

- eins gott að þetta geri maður bara einu sinni!!!:)

 

Takk yndislegu vinkonur mínar – vona að ég sé ekki að gleyma neinu!!!! (og kannski  má sumt betur kyrrt liggja í svona færslu - tíhíh;)

Þetta var endalaust gaman – ég lifi á þessu lengi!!!

LOVE YOU!!!

Góðir óvissutímar!Íris

Undirbúningur brúðkaups er í fullum gangi – alltaf nóg af smáatriðum sem eru eftir! En mikið er þetta gaman samt! Og get sko sagt ykkur það að ég held ég fari bara út í að verða svona “Wedding Planner” eins og J-Lo forðum... það er alveg örugglega góð vinna!

 - og þar myndi ég sko geta haft stjórn á öllu! Vopnuð þráðlausum “mæk” og skipulagsmöppu – allt klárt!

 

- en held samt að ég þyrfti að hafa alla okkar vini í aðstoðarteyminu, þetta væri ekki hægt án þeirra!! –takk!!

 

Fyrir stjórnunarfrík er mjög erfitt að standa frammi fyrir aðstæðum sem ekki verður stjórnað! Það á við um t.d. skapferli afkvæma minna (já, ef þið hafið ekki áttað ykkur þá er stjórnunarfríkið að sjálfsögðu undirrituð), veðrið og annað slíkt sem lætur illa af stjórn. Það nýjasta, vil nú kannski ekki kalla það vandamál, en staða er kannski réttara er sú staðreynd að ég verð að öllum líkindum gæsuð! –veit ekki hvenær, veit ekki hvernig og veit ekki neitt!! –og það er erfitt! Ég held ég viti þó nokkurn veginn að það verði þar sem Erla vinkona kann skyndilega öll eftirnöfn og tengsl annarra vinkvenna minna – hef amk ekki tekið eftir þessari vitneskju hjá henni áður og í þau skipti sem ég hef hitt vinkonur mínar fleiri en eina síðustu vikur bregst það ekki að það er eitthvað pínu baktjalda-spjall...sem ég fæ ekki að heyra!!

 

Ég hef brugðið á það ráð að skipuleggja hverja einustu helgi fram að brúðkaupi!! – og ég þegar ég segi skipuleggja þá meina ég að hver mínúta er þaul-skipulögð. Og reyni ég svo við hvert tækifæri að láta vinkonur mínar vita af því að það sé svoooo brjálað að gera hjá mér hverja helgina á fætur annarri!! –ég er ekki þessi týpa sem vaknar upp á hverjum frídegi og byrjar að pakka niður fyrir hugsanlega gæsun! Ó, nei, ég frekar vona svona pínu að þetta verði kannski bara geymt til betri tíma... tja, svona fram á haustið til dæmis!

En ætli það sé ekki með þetta eins og fæðingar dætra minn að það skipti ekki máli hversu mikið ég reyni að troða á eina helgi, ég mun ekki stjórna þessu... svona lagað bara byrjar – rétt eins og hríðirnar... en ég verð nú að leyfa mér að trúa því að þetta verði þó ekki eins sársaukafullt!! (–og ég ætla nú ekki að fara einu sinni þangað að útkoman verður heldur aldrei jafn gleðileg og burðir afkvæma minna;) –ætla ekki að setja þær kröfur á skipuleggjendur gæsunar...tíhíh...)

 

Ég held bara áfram að fylla hverja síðu dagbókarinnar minnar með allskonar atriðum og áminningum... svo sjáum við bara hvað setur!

 

Yfirlit...Íris

Ég ákvað þetta árið að heiðra sögu páskanna á ýmsan veg!

Við hófum það hjónin með að fara í leikhús – á Jesus Christ Superstar, eða Jesúm Krist ofurstjörnu öllu heldur. Það fannst okkur hin besta skemmtun og fengum okkur til liðsinnis við skemmtunina Snædísi og Jón Trausta. (hey, sáum svo morðingjann úr Pressunni á Ölstofunni –geri aðrir betur;)

 

Mér tókst svo að vera komin með hita morguninn eftir þegar ég vaknaði. Ég hélt í einfeldni minni að þetta væri eitthvað lítilræði og ætlaði...og ég endurtek ÆTLAÐI að hrista þetta af mér, sem gekk sko alls ekki og ég sem sagt kvaddi þennan heim nánast og reis upp að nýju... sem betur fer!

 

Það er langt síðan ég hef verið svona veik og ég er eiginlega ekki orðin alveg nógu góð ennþá – fór í ræktina áðan og varð frá að víkja eftir rétt rúmlega hálfan tima, í köldu svitakófi með virkilega óvelkominn svima í kollinum.

Það sem virkilega vont var á þessum tíma að minn verðandi eiginmaður þurfti akkúrat að vera í Hollandi í vinnuferð. Við sendum eldri krúsuna norður til p og m í vist á sunnudaginn og sú yngri dvaldi mikið hjá ömmu sinni hérna í Firðinum;)

Svo komst ég að því að ég á bestu vinkonur í heimi – svona einskonar lærisveina??;) því þær komu hér í röðum með ýmislegt matarkyns, afþreyingu auk yndislegs félagsskapar og kósýheita – vona að þær séu ekki allar lagstar í rúmið núna:/

 

Við komumst nú samt sem áður norður til Akureyrar á föstudaginn langa. Það var gott að koma í mömmu og pabba faðm – og þar dvöldum við þangað til í dag – tókum einn svona auka-páskafrísdag. Sáum ekki eftir því, þar sem það var voða lítil og þægileg umferð í dag að keyra heim. (Líklega hefur geðveikin klárast í gær...)

Ég og Naomí Sif vöknuðum eldsnemma á Páskadag og fórum í messu, þar voru p&m og Elfur að syngja... á meðan við sugum í okkur helgileik og falleg orð voru Dóri og Lísbet Hekla heima að fela páskaegg:) Göngutúrar, góður matur, leirspilið, heimsóknir til ömmu lang í sveitinni, og löngu og langa á Ak....þetta voru góðir páskar!:)

 

Annars er það að frétta af okkur að það er hálfur mánuður í að það sé komið ÁR síðan “kornabarnið” okkar fæddist;) sjííí... þetta er bara skrítið!!

 

Svo er sko allt á fullu í undirbúningi fyrir stóra daginn;) –þegar við játumst að endingu frammi fyrir Guði og mönnum! Það eru ótal atriði sem við eigum eftir að huga að ... en erum samt nokkuð róleg...einstaka sinnum sem við lítum á hvort annað og minnum á að það sé nú líklega sniðugt að finna tíma fyrir bæjarferð í hringakaup...eða annað sem okkur dettur í hug það skiptið;)

 

Sendi ykkur knús – það er gott að vera til!!!

 

Staðsetning þvottahúsaÍris

Hvar ætli sé best að hafa þvottahús? Hef tekið eftir því upp á síðkastið að þvottur sem kemur inn í skáp úr þvottahúsinu okkar angar af matarlykt... sem er alls ekki skemmtilegt að hreint tau geri! Hef reynt að lofta vel út þegar ég er að elda en allt kemur fyrir ekki... bakaði pizzu um daginn og kjóllinn minn sem ég var í daginn eftir bar vott af bökunarlykt... nokkrum dögum áður höfðum við hakk og spaghettí og þessi ilmandi steikingarlykt hékk föst í peysunni minni eftir að hafa hangið á snúrunni það kvöld:/ Annað hvort verð ég að hætta að elda eða passa alltaf að hafa ekki þvott á snúrunni á sama tíma... hmm... bæði er reyndar illviðráðanlegt, þar sem einu tímarnir til að þvo er jú þegar maður kemur heim úr vinnunni seinni partinn og ég efast um að heimilisfólk samþykki að hér verði jógúrt eða súrmjólk í hvert mál!;)

Þetta heitir kannski að gera úlfalda úr mýflugu, kannski er bara búsældarlegt að vera alltaf með smá matar/bökunarkeim af sér? Gerir mann að fullkominni húsmóður!?

...Og kannski væri bara ekkert betra að hafa þvottahúsið inn af klósettinu!??!

 

Með virðingu og vinsemd!!

Íris

Aðalvalmynd

Könnun

Matarkarfan...

Auglýsing

Um mig...

ég er:
- eiginkona
- mamma
- vinkona
- systir
- vinnandi kona
- sælkeri
- með mikið keppnisskap
- hlæjandi

Ég...


- Sjóræningjanafnið mitt er:
Black Neck Snapper Nellie


- 1920's nafnið mitt er: Tiny Octavia

Innskráningar kubbur